Arkarvogur 6 (203) 104

Reykjavíkurborg

Lýsing

Miklaborg og Jórunn lögg.fasteignasali kynna: Arkarvogur 6 nýbygging íbúð 208 í Vogabyggð í Reykjavík. Glæsileg íbúð á 2.hæð með suður svölum með útsýni á smábátabryggjuna. Íbúðin er fullbúin með flísum á votrými annars parket á gólfum. Stæði í lokaðri aðgangsstýrðri bílageymslu. Íbúðin einstaklega falleg og vel skipulög að stærð 101,3 fm og skipar: forstofu, hol, sér þvottahús innan íbúðar, baðherbergi, tvö svefnherbergi, sjónvarpshol, opið eldhús með eyju inn í stofur, ísskápur og uppþvottavél fylgir. Geymsla í kjallara ásamt stæði í bílakjallara. Lyftuhús. Glæsilegar innréttingar ljósar með dökkum borðplötum. Sér þvottahús innan íbúðar. Íbúðin er parketlögð en votrými flíslögð. *Dýrahald leyft í húsinu ánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn lögg.fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is

Húsið: Er nýbygging sem var afhent fyrir ári síðan.. Á lóðinni Arkarvogur 2 sem er afmörkuð af götunum Arkarvogur, Dugguvogur, Kuggavogur, Drómundarvogur og Vörputorgi eru 5 matshluta húsaþyrping. Mathlutar 01,02,03 og 04 eru saman og tilheyrir eignum í mathluta 01-04. Húsinu tilheyrir einnig húsinu djúpgámar mhl -06 og 07. Fyrir atvinnuhúsnæði er gert ráð fyrir sorpgeymslum innan lóðarmarka á milli mhl 01 og 02. Með aðgengi að Drómundarvogi. Gert er ráð fyrir 165 bílastæðum í bílageymslu, þar af 8 sérmerkt hreyfihömluðum. Húsið er hannað hjá PK arkitekt. Lóðin er 8.991,0 fm auk tveggja djúpgámaskika sem er 26 fm hvor. Samtals stærð lóðar 9.044 fm.

NÁNARI LÝSING: Komið er inn í rúmgott sameiginlegt anddyri að lyftuhúsi. Þegar komið er inn í íbúð er rúmgóð opin forstofa með fataskápum þar sem alrými fær að njóta sín. Alrýmið er bjart og opið en þar er eldhús með eyju, uppþvottavél og ísskápur fylgja með í innréttingu sem er stílhrein og fallega innréttað frá Nobilia, með útgengi út á suður svalir. Sjónvarpshol inn af stofu og holi er rúmgott. Baðherbergið er flísalagt að hluta til með fallegum gráum flísum. Á baði er góð snyrtiaðstaða, sturta og góður skápur undir handlaug með speglaskápum fyrir ofan. Sér þvottahús innan íbúðar. Tvö svefnherbergi með fataskápum. Sér bílastæði og 10,8 fm geymsla í kjallara.

Um er að ræða sérstaklega fallega, vel skipulagða íbúð á 2. hæð með góðri tengingu við garðinn af svölum hússins og útsýni á smábátabrygguna. Dýrahald er leyft í húsinu því tilvalið fyrir þá sem eiga gæludýr. Eigninni fylgir stæði í bílakjallara. Frábær staðsetning, stutt í allar áttir á stofnbrautir. Einnig góðir göngu og hjólastígar með ströndinni uppí Elliðarárdal niður Fossvoginn. Og fyrir þá sem hafa áhuga á siglingum hjá er Snarfari í göngufæri. Eign sem hentar vel þeim sem una dýrum og útivist.

*PANTIÐ EINKASKOÐUN*

Hér má sjá upplýsingar um hverfið frá Reykjavíkurborg: https://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skipogbygg/skjol/vogabyggd2greinargerd-10.pdf

Allar nánari upplýsingar gefur Jórunn í síma 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% fyrstu kaup / 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar eru mismunandi eftir lánastofnunum frá kr 30 - 81 þúsund. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Fasteignin Arkarvogur 6 (203)

101.3 3 Herbergi 2 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2022
Fermetraverð : 840,594 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 78.750.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jorunn
Jórunn Skúladóttir
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Jórunn hefur mikla reynslu af stjórnun og verslunarrekstri, enda alin upp við það frá blautu barnsbeini. Jórunn er löggildur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, ásamt því að hafa lokið tveggja ára nám í rekstrarstjórnun við Háskólann í Reykjavík. Jórunn hefur starfað sem fasteignasali frá byrjun árs 2011, en þar áður var hún í eigin rekstri. Að starfinu hennar undanskildu, eru helstu áhugamál Jórunnar útivist, hreyfing og góðar samverustundir með sínum nánustu, en Jórunn er gift og á fjóra uppkomna syni.“

84.900.000 Kr.
Hafðu samband