Bjargartangi 8 270

Mosfellsbær

Lýsing

Miklaborg kynnir: 245,0 m2 einbýlishús á tveimur hæðum við Bjargartanga 8 í Mosfellsbæ. Innifalin 71 m2 íbúð á jarðhæð sem er í útleigu. Fallegur garður með sólpalli. Nýlegt gler er í öllu húsinu og nýlegar hurðar. Óskað er eftir tilboðum í eignina sem er til afhendingar strax.

Efri hæðin er 151,1 m2 og skiptist í þrjú herbergi, baðherbergi, gestasnyrting, samliggjandi stofur, eldhús, forstofu, sjónvarpshol og bílskúr og þvottahús. Stigi er úr stofu upp í rúmgott  óskráð rými sem er í risinu sem nýtist vel sem sjónvarpsherbergi t.d. Bílskúrinn/þvottahús er 22,5 m2. 

Komið er inn í forstofu með fataskápum og flísum á gólfi. Úr forstofu er gengið inn í samliggjandi stofur með parket á gólfum. Forstofuhliðin var endurnýjuð að utanverðu nýlega. Komið er inn í sjónvarpstofu þaðan sem gengið er upp í efri stofur með glæsilegu útsýni til Esjunnar. Rúmgóðar stofur þaðan sem gengið er inn í eldhús með fallegri nýlegri innréttingu með stein í borðplötum og kork parket. Eldhúseyja með miklu skápaplássi, helluborð í eyju. Í innréttingu er bæði ofn og örbylgjuofn. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu ásamt uppþvottavél. Frá stofum er gengið upp í rúmgott rými sem er rúmlega 30 fm og er ekki í birtri fermetratölu. Rýmið er í dag nýtt sem sjónvarpsstofa og er mjög rúmgott og notalegt. Súðgeymslur til beggja hliða þaðan sem er aðgangur að þaki.

Þrjú svefnherbergi en úr einu þeirra er gengið út á timburverönd. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, nýlega endurnýjað með fallegri innréttingu og baðkar með sturtu. Þvottahús er stórt með hillum og epoxy gólfi. Snyrtilegur bílskúr með epoxy á gólfi og fjartstýrðri hurðaopnun.

Aukaíbúð á neðri hæð skiptist í tvö svefnherbergi, miðrými sem nýtist sem stofa. Stórt baðherbergi með sturtu og eldhús með nýlegri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir uppþvottavél m.a.

Eignin er skráð 245 m2, þar af íbúð á hæð 151,1 m2, bílskúr 22,5 m2 og íbúðarherbergi í kjallara sem er 71,4 m2, til viðbótar bætist við sjónvarpstofa og eignin því um 275fm að stærð.

Samkvæmt upplýsingum frá seljanda voru skólplagnir endurnýjaðar undir húsinu árið 2017.

Gott fjölskylduheimili í eftirsóttu og rólegu hverfi í Mosfellsbæ

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Bjargartangi 8

245.0 8 Herbergi 3 Stofur 5 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1975
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Einbýlishús
Fasteignamat : 129.100.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteignasali

Jón Rafn hefur starfað við fasteignasölu í tvo áratugi. Hann hefur víðtæka reynslu í sölu sumarhúsa jafnt sem sölu annara fasteigna. Jón Rafn er uppalinn í Fossvoginum, en bjó lengi vel í vesturbæ Reykjavíkur og Garðabæ en í dag er hann ásamt eiginkonu sinni búsettur í Mosfellsbæ. Jón á tvo syni með eiginkonu sinni sem fært hafa þeim alls fimm barnabörn.

695-5520
0 Kr.
Hafðu samband