Skipholt 1 (506) 105

Reykjavíkurborg

Lýsing

***TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR-SÝNUM DAGLEGA- GENGIÐ INN FRÁ STÓRHOLTI

Miklaborg kynnir í einkasölu. Íbúð 506 glæsileg útsýnisíbúð á efstu hæð með lofthæð mest um 3,40 m, í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Eignin er mjög heillandi staðsett í boganum sem setur mikinn svip á bygginguna. Inngangur frá stigagangi. Forstofa með góðum skápum, Tvö stór svefnherbergi 12,2 fm og 13,0 fm. Stórt bjart alrými með útgengi á 4,5 fm bogadregnar suðursvalir. Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Harðparket á gólfum og innbyggður ísskápur og uppþvottavél frá AEG. Sjálf íbúðin er 86,9 fm og geymsla í kjallara 12,3 fm. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð. Örstutt göngufæri í matvöruverlslun og niður á Hlemm sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgfs s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is

Ath mynd af edhúsi er tekin

Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.

HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhendast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni , og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG.

Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.

Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni. Íbúar í Skipholti 1 eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H á myndinni (sjá mynd í myndasafni) auk þess sem fullt er af ógjaldskyldum stæðum td í Skipholtinu. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.

Sjá upplýsingar á heimasíðu verkefnisins https://skipholt1.is/ . Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is , Jórunn Skúladóttir lgf s:845-8958 og jorunn@miklaborg.is, Kjartan Ísak Guðmundsson lgf s:663-4392 og kjartan@miklaborg.is og Katla Hanna Steed lgf s:822-1661 og katla@miklaborg.is

Fasteignin Skipholt 1 (506)

99.2 3 Herbergi - Stofur - Svefnherbergi - Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1960
Fermetraverð : 1,202,020 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 31.850.000

Nánari upplýsingar veitir:

Þórunn Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, verkfræðingur, MBA

Þórunn er alin upp í verktakabransanum. Hún var um árabil fjármálastjóri hjá Ístaki og sá um fasteignamál fyrirtækisins þar sem hún kom að sölu fjölmargra fasteigna. Þá starfaði hún í Íslandsbanka, lengst í einkabankaþjónustu. Þórunn er liðtækur zumbadansari í frístundum.

119.000.000 Kr.
Hafðu samband