Opið hús: 19.05.2024, 16:00 - 19.05.2024, 17:00

Sunnusmári 10 (201) 201

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsileg, vönduð og vel skipulögð 102,4 fm 3ja herbergja íbúð í nýjasta hluta Smárans í Kópavogi sem er nútímalegt borgarhverfi þaðan sem stutt er í þjónustu verslana og þjónustu s.s. Smáralind, heilsugæslu, skóla og íþróttaaðstöðu ásamt því sem aðgengi að stofnbrautum og þjónustu almennisvagna er afar auðveld. Íbúðir eru afhentar fullbúnar án megin gólfefna en hægt að kaupa parket aukalega á sérstökum kjörum. Til afhendingar í október 2024.

Sýnum samdægurs - bókið einkaskoðun hjá Svan Gunnari Guðlaugssyni löggiltum fastaignasala í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Íbúð 201 er 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í Sunnusmára 10-14 ásamt stæði í bílakjallara nr. A52. Íbúðin skilast fullbúin án megin gólfefna en eldhústæki m.a. innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Steinn er á eldhúsborðum og á baðherbergi. Stofa og eldhús í opnu svæði. Innréttingar í eldhúsi, baðherbergjum og skápar í svefnherbergjum eru frá GKS. Votrými eru flísalögð. Litapalleta, skv. skilalýsingu. Eignin skiptist í anddyri með fataskápum. Eldhús er í opnu rými við stofu og borðstofu þaðan sem útgengt er á 13,3 fm svalir sem eru að hlutatil með svalalokun og snúa í suðvestur. Tvö svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, gólfhita, upphengdri salernisskál og vönduðum hreinlætistækjum. Sér þvottahús með einfaldri innréttingu. Sér geymsla í kjallara er 6,6 fm að stærð.

Íbúðum er skilað án parkets. Söluaðili er með verktaka á vinnusvæðinu sem getur séð um að leggja parketi fyrir kaupanda óski hann þess. Niðurlögn getur þá verið í beinu framhaldi af forskoðun og fyrir afhendingu. Reikna má með að parketlögn taki 7-8 daga en skoða þarf það í hverju tilviki fyrir sig. Verktaki vinnur beint fyrir kaupanda og greiðir honum umsamið verð beint fyrir verkið. Upplýsingar um kostnað liggja fyrir hjá fasteignasölu.

Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það verður sett á. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni: www.201.is , Vísað er til frekari upplýsinga í skilalýsingu sem sjá má á síðunni.

Allar nánari upplýsingar veita:

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896 8232 eða thorhallur@miklaborg.is

Katla Hanna Steed löggiltur fastiegasali í síma 822 1661 eða katla@miklaborg.is

Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteignasali í síma 695 5520 eða jon@miklaborg.is

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691 2312 eða osa@miklaborg.is

Ingimundur Ingimundarson aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Fasteignin Sunnusmári 10 (201)

102.4 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 857,843 Kr/m²
Byggingargerð : Fjölbýlishús
Fasteignamat :
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

Svan Gunnar Guðlaugsson
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan er giftur og á 4 dætur.

87.500.000 Kr.
Hafðu samband