Óskar R. Harðarson,
hdl. og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, lögg. leigumiðlari og framkvæmdastjóri
gsm 661-2100
Óskar R. Harðarson er framkvæmdastjóri Mikluborgar. Óskar hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 1998 og er útskrifaður lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Óskar öðlaðist héraðsdómslögmannsréttindi á árinu 2004. Óskar er uppalinn í Reykjavík en býr í Garðabæ í dag ásamt konu sinni og þremur börnum.
Jason Guðmundsson,
hdl. og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, lögg. leigumiðlari
Jason útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2008. Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu vorið 2000. Jason hlaut réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2009. Jason hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996. Hann sér um samningagerð og sölu fasteigna. Jason býr á svæði 105, er giftur og á þrjú börn, 18 ára strák, 12 ára og 3ja ára stúlku.
Ragna Stefanía Óskarsdóttir,
Viðskiptafræðingur MBA og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
gsm 892-3342
Ragna lauk námi til löggildingar í fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu í júní 2009. Hún hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2007 þegar hún kláraði MBA nám við Háskóla Íslands. Kennaraprófi lauk hún árið 1990 og hefur stundað kennslu bæði á unglinga- og framhaldsskólastigi í Viðskipta- og tölvuskólanum, þar sem hún gegndi einnig stöðu skólastjóra. Að auki hefur hún starfað við verslunarrekstur. Ragna býr í Hlíðunum, hún á 3 börn, 11, 12 og 23 ára. Ragna starfar við sölu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis.
Guðrún Pétursdóttir,
Ritari/skjalagerð
Guðrún Pétursdóttir er uppalin í Kópavogi en flutti til Snæfellsbæjar árið 1980 og bjó þar til ársins 1999 og vann þar meðal annars hjá Sýslumanni Snæfellinga og Hafnarsjóði Snæfellsbæjar. Guðrún er gagnfræðingur að mennt og hefur farið á námskeið fyrir starfsfólk fasteignasala og ýmis tölvunámskeið. Guðrún hefur starfað á fasteignasölu frá árinu 1999 við skjalgerð og fleira og er gift og á 3 uppkomnar dætur.
Halldór Ingi Andrésson,
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
gsm 897-4210
Halldór Ingi hefur starfað við fasteignasölu og skjalagerð frá árinu 1999 og er löggiltur fasteignasali. Halldór Ingi hefur unnið meðal annars við útgáfustarfsemi, inn- og útflutning og verslunarrekstur á árum áður. Halldór Ingi hefur setið í stjórn og nefndum Gróttu og HSÍ. Einnig var hann á sínum tíma í stjórn Félags fasteignasala. Einnig er tónlist hluti af hans áhugamálum en hann var með vikulegan þátt á Rás 2, í poppheimi.
Halldór Ingi er búsettur á Seltjarnarnesi og er giftur og á tvær uppkomnar dætur.
Hilmar Jónasson,
Sölufulltrúi
gsm 695-9500
Hilmar lauk stúdentsprófi frá Verslunaskóla Íslands árið 1993. Hann starfaði sem brunavörður frá árinu 1996-2003 hjá Slökkviliði keflavíkurflugvallar en hóf síðan nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands á árunum 2004-2006. Hilmar hóf störf sem sölumaður íbúðar- og atvinnuhúsnæðis í byrjun árs 2007. Hilmar er uppalinn í Reykjavík en er búsettur í Vesturbæ Kópavogs ásamt konu sinni og þremur börnum.
Ólafur Finnbogason,
Sölumaður með B-ed. og MPM
gsm 822-2307
Ólafur Finnbogason hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2002.
Ólafur er menntaður grunnskólakennari og með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM). Ólafur er í sambúð og á tvö börn. Ólafur er uppalinn Seltirningur en býr í Vesturbænum. Ólafur er mikill áhugamaður um skot- og stangveiði. Einnig hefur Ólafur þjálfað handbolta með hléum síðan 1991.
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson,
Sölufulltrúi
gsm 893-1485
Heimir lauk verslunarprófi frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti árið 1986. Hóf þá nám í Lögregluskóla ríkisins og lauk því árið 1988 og starfaði sem lögreglumaður í Reykjavík til ársins 2007. Heimir byrjaði störf sín sem sölumaður íbúðar- og atvinnuhúsnæðis í byrjun árs 2007 og hefur starfað við það síðan. Heimir er uppalinn og búsettur í Reykjavík. Heimir er í sambúð og á 3 börn.
Atli S. Sigvarðsson,
Sölufulltrúi, löggiltur leigumiðlari
gsm 899-1178
Atli hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2005 og er löggiltur leigumiðlari
Davíð Jónsson,
Sölufulltrúi
gsm 697-3080
Davíð hefur víðtæka þekkingu á nýbyggingum og innviðum. Hann hefur unnið við ýmis byggingarstörf svo sem smíðar og verkstjórn. Davíð vann hjá BYKO í 8 ár við ýmis sölustörf svo sem verktakaþjónustu og önnur sérverkefni.
Jórunn Skúladóttir,
Sölufulltrúi
gsm 845-8958
Jórunn, hefur mikla reynslu í verslun og stjórnun. Byrjaði í fasteignasölu í byrjun árs 2011.Starfaði áður sem innkaupastjóri hjá Kaupás. Hefur einnig verið í eigin rekstri. Er gift og á 4.börn.
Svan Gunnar Guðlaugsson,
Sölufulltrúi
gsm 697-9300
Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður.
Svan er giftur og á 4 dætur.
Þröstur Þórhallsson,
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali,
gsm 897-0634
Þröstur hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 1996 og fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, vorið 2000. Þröstur starfar jafnt við sölu íbúðar og atvinnuhúsnæðis. Þröstur býr í Grafarholti, er giftur og á þrjú börn, 21 árs stúlku, 9 ára strák og 6 ára stúlku. Áhugamál eru íþróttir og útivera. Golf og skák eru í miklu uppáhaldi og þess má geta að Þröstur er stórmeistari í skák.