Kolbeinsmýri 3 170

Seltjarnarnes

Lýsing

Miklaborg og Jón Rafn fasteignasali kynna: Glæsilegt og vel skipulagt fjölskylduheimili á þremur hæðum á Seltjarnarnesi. Parhús staðsett á besta stað í Mýrunum á Seltjarnanesi í rólegri botnlangagötu. Eignin er skráð 296,6 fm í Þjóðskrá. Af því er bílskúr 26,8 fm.  Eignin skiptist í glæsilegar bjartar stofur með mikilli lofthæð og arni. Svefnherbergi eru fimm talsins.  Eignin er á þremur hæðum og eru tvennar snyrtingar á efri hæðum. Nýlega skipt um þakjárn og rennur. Þakgluggi í skála var endurnýjaður á síðasta ári. Innréttingar eru hinar glæsilegustu en innanhúshönnuður hússins er Guðbjörg Magnúsdóttir. Hús sem þessi koma sjaldan í sölu.

Nánari lýsing miðhæðar:

Anddyri: Mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Flísalagt gólf

Gestasnyrting: Inn af anddyri, flísar á gólfi og skápur undir handlaug og einnig fyrir ofan salernisskál.

Stofur: Veglegt alrými jarðhæðar skiptist skiptist í stofu, borðstofu, setstofu, sólstofu og arinstofu á neðra palli. Höfugt og bjart rými með gegnheilu kirsuberjaparket á gólfi. Útgengt er í garð þar sem er viðarpallur. Hluti þessa alrýmis er flísalagður.

Eldhús: Stórt og með góðu skápaplássi sem og vinnuaðstöðu. Gluggi sem vísar út að götu. Flísalagt gólf.

Efri hæð:

Svefnherbergi: Fjögur talsins. Útgengt á svalir er snúa í austur frá einu þeirra. Þrjú herbergi eru með fataskápum.

Baðherbergi: Góð sérsmíðuð innrétting, mikið skápapláss, tvennar handlaugar, baðkar og sturta. Handklæðaofn og mikil lofthæð.

Tröppur: Mjög fallegur tröppugangur upp að efri hæð með tveimur gluggum er veita fallega birtu.

Neðsta hæð:

Herbergi: Rúmgott herbergi sem í dag er nýtt sem sjónvarpsherbergi. Annað stórt svefnherbergi með aðgang að baðherbergi sem er með sturtu. Draumaherbergi unglingsins á heimilinu með inngangsdyr

Þvottahús: Stórt með miklu skápaplássi

Bílskúr er skráður 26,8 fm og til viðbótar er aðgangur að millilofti.

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Kolbeinsmýri 3

296.6 9 Herbergi 3 Stofur 6 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1990
Fermetraverð : 658,784 Kr/m²
Byggingargerð : Parhús
Fasteignamat : 166.100.000
Þvottahús : Sér

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteignasali

Jón Rafn hefur starfað við fasteignasölu í tvo áratugi. Hann hefur víðtæka reynslu í sölu sumarhúsa jafnt sem sölu annara fasteigna. Jón Rafn er uppalinn í Fossvoginum, en bjó lengi vel í vesturbæ Reykjavíkur og Garðabæ en í dag er hann ásamt eiginkonu sinni búsettur í Mosfellsbæ. Jón á tvo syni með eiginkonu sinni sem fært hafa þeim alls fimm barnabörn.

695-5520
195.000.000 Kr.
Hafðu samband