Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir nýtt í einkasölu: Ný 109 fm3ja herbergja íbúð í nýju fjórbýli á eftirsóttum stað við Álfhólsveg 73 Kópavogi. Húsið er staðsteypt og skilast steinað að utan. Þetta eru rúmgóðar og vel skipulagðar íbúðir miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, allar með sér inngangi. Frábært útsýni. Íbúðirnar skilast fullbúnar án aðal gólfefna og eru tilbúnar til afhendingar.
Bókaðu skoðun hjá Atla fasteignasala í síma 899-1178 eða atli@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Um er að ræða íbúð 102.
Íbúð á neðri hæð með sér inngangi. Komið er inn í anddyri með fataskáp. Stofa og eldhús mynda saman stórt opið alrými með útgengi út á verönd / sérafnotarétt. Hjónaherbergið er rúmgott með stóru fataherbergi og góðum skápum. Aukaherbergið er fínt og skilast með fataskáp. Baðherbergið er rúmgott og skilast með fínni innréttingu, sturtu með einhalla + gleri og vegghengdu salerni. Góð aðstaða fyrir þvottavél er inná baðherberginu. Geymsla / vinnuherbergi er innan íbúðar ásamt geymslu í sameign.
Þetta er spennandi tækifæri að eignast nýja íbúð í grónu og eftirsóttu hverfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali sími: 899-1178 / atli@miklaborg.is