Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Glæsileg 2ja herbergja íbúð merkt 411 á 4. hæð í 7. hæða lyftuhúsi auk stæðis í bílageymlu. Íbúðin er skráð 86,8 fm að stærð. Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi með þvottahúsi innaf og geymsla í kjallara. Íbúðin skilast fullbúin án gólfefna en með flísum á forstofu, þvottahúsi og baðherbergi. Lofthæð íbúðar er 2,74 metrar. Gólfhitakerfi í íbúð. Suðurvalir.
Allar nánari upplýsingar gefa: Jason Kristinn Ólafsson , s. 775-1515 - jko@miklaborg.is
Stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum, auk þess sem eigendum býðst að kaupa lokað aukastæði í bílageymslu fyrir báta o.fl. Þrjár lyftur þjónusta húsið sem er hannað sem nokkurs konar ferhyrningur með stórum, sameiginlegum garði í miðjunni, auk þess sem sameiginlegar þaksvalir verða á hluta 6. og 7. hæðar.
Gólfsíðir gluggar eru í allri íbúðinni sem gera hana einstaklega bjarta og með frábæru útsýni. Mýrargatan er staðsett á einum besta stað í Reykjavík. Íbúðin er spölkorn frá miðbæ Reykjavíkur en íbúar Mýrargötu njóta þó útsýnisins og sjávarilmsins í ró og næði.
Allar nánari upplýsingar gefa: Jason Kristinn Ólafsson , s. 775-1515 - jko@miklaborg.is löggiltur fasteignasali