Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
***Bókið skoðun hjá Barböru í síma 823-0339***
Skógarvegur 6-8 Fossvogi. Nýbygging með 69 íbúðum. Íbúð 117 er glæsileg endaíbúð á 1. hæð með 24,9 m² sérafnotafleti til suðurs. Eigninni fylgir 11,8 m² geymsla ásamt stæði í bílageymslu B-40. Eignin skipar: Hol og anddyri, hjónherbergi með fataherbergi, tvö barnaherbergi, tvö baðherbergi og sér þvottahús inn af eldhúsi. Eldhús og stofa eru samliggjandi. Eldhús með eyju og stofurnar rúmgóðar og bjartar með útgengi á sérafnotaflötinn. Íbúð með vönduðum innréttingum á besta stað í borginni. Afhendist fullbúin án gólfefna. Nánari upplýsingar veitir Barbara Rut Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 823-0339 eða barbara@miklaborg.is
Húsið: Skógarvegur 6-8 er staðsteypt hús, einangrað og klætt að utan. Húsið er kjallari og 4. hæðir með 69 íbúðum. Í kjallara eru 69 bílastæði ásamt geymslum sem tilheyra íbúðunum og sameignarrými. Í boði eru íbúðir frá einstaklings -5 herbergja íbúðir. Stærðir íbúða er frá 59,3 fm - 171,9 fm. Húsið teiknaði Guðmundur Gunnlaugsson Archus ehf. https://www.youtube.com/watch?v=-qLDFCdT8tQ
Íbúð 117 Er glæsileg endaíbúð á 1. hæð. Eignin skipar: Hol og anddyri, hjónherbergi með fataherbergi, tvö barnaherbergi, tvö baðherbergi og sér þvottahús inn af eldhúsi. Eldhús og stofa eru samliggjandi. Eldhús með eyju og stofurnar rúmgóðarog bjartar með útgengi á sérafnotaflötinn. Sjá skilalýsingu.
Verktakinn: Dverghamrar ehf var stofnað árið 1986 af núverandi eigendum, þeim Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Magnúsi Jóhannesi Sigurðssyni. Byggingastjórar fyrirtækisins starfa eftir vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem lögð er rík áhersla á fagleg vinnubrögð. Framkvæmdar eru reglulegar úttektir á verkþáttum framkvæmdarinnar þar sem tryggt er að unnið sé í samræmi við verklýsingar og að skilað sé traustri og góðri vöru. Leggja metnað í að veita viðskiptavinum persónulega þjónustu og gott samstarf.
Nánari upplýsingar veitir Barbara Rut Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 823-0339 eða barbara@miklaborg.is