Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
PANTIÐ EINKASKOÐUN, TEIKNINGAR EÐA VERÐLISTA HJÁ JÓNI RAFNI LÖGG. FASTEIGNASALA Í SÍMA 695-5520 EÐA JON@MIKLABORG.IS.
SkógarvegUR 6-8 Fossvogi Reykjavík, nýbygging með 69 íbúðum. Íbúð 214 er glæsileg íbúð á 2. hæð með vestursvölum 12,8 fm. Eigninni fylgir geymsla 13 fm ásamt stæði í lokaðri bílageymslu B-61. Eignin skipar: anddyri, hjónasvíta með fataherbergi og tvö önnur svefnherbergi m. fataskápum, baðherbergi, sér þvottahús til hliðar v. eldhús. Eldhús með eyju sem er opin inn í stofu. Rúmgóðar og bjartar stofur með útgengt á vestursvalir. Um er að ræða einstaklega glæsilega íbúð á besta stað í borginni. Vandaðar innréttingar. Íbúðin afhendist fullbúin án gólfefna, nema á votrýmum þar eru flísar. Nánari upplýsingar um eignina veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Húsið: Skógarvegur 6-8 er staðsteypt hús, einangrað og klætt að utan. Húsið er kjallari og 4. hæðir með 69 íbúðum. Í kjallara eru 69 bílastæði ásamt geymslum sem tilheyra íbúðunum og sameignarrými. Í boði eru íbúðir frá einstaklings -5 herbergja íbúðir. Stærðir íbúða er frá 59,3 fm - 171,9 fm. Húsið teiknaði Guðmundur Gunnlaugsson Archus ehf. https://www.youtube.com/watch?v=-qLDFCdT8tQ
Íbúð 214 Er glæsileg íbúð á 2. hæð. Eignin skipar: hjónasvíta með fataherbergi og tvö önnur herbergi til viðbótar með fataskápum. Baðherbergi með snyrtiaðstöðu, sem gengið er inn í úr holi. Forstofa með góðum fataskápum. Eldhúsið með eyju er opið inn í stofu. Sér þvottahús til hliðar v. eldhús, með góðri vinnuaðstöðu. Stofur mjög rúmgóðar og bjartar með útgengt út á svalir.
Verktakinn: Dverghamrar ehf var stofnað árið 1986 af núverandi eigendum, þeim Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Magnúsi Jóhannesi Sigurðssyni. Byggingastjórar fyrirtækisins starfa eftir vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem lögð er rík áhersla á fagleg vinnubrögð. Framkvæmdar eru reglulegar úttektir á verkþáttum framkvæmdarinnar þar sem tryggt er að unnið sé í samræmi við verklýsingar og að skilað sé traustri og góðri vöru. Leggja metnað í að veita viðskiptavinum persónulega þjónustu og gott samstarf.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is