Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ JÓNI RAFNI Í SÍMA 695-5520 EÐA JON@MIKLABORG.IS
Skógarveg 6-8 Fossvogi Reykjavík, nýbygging með 69 íbúðum. Íbúð 208 er glæsileg íbúð á 2. hæð með 6,2 fm svölum er snúa til suðurs. Eigninni fylgir 10,2 fm geymsla ásamt stæði í lokaðri bílageymslu B-10. Eignin skipar: anddyri, hjónasvíta með fataherbergi og annað minna svefnherbergi með fataskáp, baðherbergi, sér þvottahús innaf eldhúsi. Eldhús með eyju sem er opin inn í stofu. Rúmgóðar og bjartar stofur með útgengt á suðursvalir. Um er að ræða einstaklega glæsilega íbúð á besta stað í borginni. Vandaðar innréttingar. Íbúðin afhendist fullbúin án gólfefna, nema á votrýmum þar eru flísar. Nánari upplýsingar um eignina veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Húsið: Skógarvegur 6-8 er staðsteypt hús, einangrað og klætt að utan. Húsið er kjallari og 4. hæðir með 69 íbúðum. Í kjallara eru 69 bílastæði ásamt geymslum sem tilheyra íbúðunum og sameignarrými. Í boði eru íbúðir frá einstaklings -5 herbergja íbúðir. Stærðir íbúða er frá 59,3 fm - 171,9 fm. Húsið teiknaði Guðmundur Gunnlaugsson Archus ehf. https://www.youtube.com/watch?v=-qLDFCdT8tQ
Íbúð 208 Er glæsileg íbúð á 2. hæð. Eignin skipar: hjónasvíta með fataherbergi. Annað svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með góðri snyrtiaðstöðu, sem gengið er inn í úr holi. Forstofa með góðum fataskápum. Eldhúsið með eyju er opið inn í stofu. Sér þvottahús innaf eldhúsi, með góðri vinnuaðstöðu. Stofur mjög rúmgóðar og bjartar með útgengt út á svalir.
Verktakinn: Dverghamrar ehf var stofnað árið 1986 af núverandi eigendum, þeim Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Magnúsi Jóhannesi Sigurðssyni. Byggingastjórar fyrirtækisins starfa eftir vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem lögð er rík áhersla á fagleg vinnubrögð. Framkvæmdar eru reglulegar úttektir á verkþáttum framkvæmdarinnar þar sem tryggt er að unnið sé í samræmi við verklýsingar og að skilað sé traustri og góðri vöru. Leggja metnað í að veita viðskiptavinum persónulega þjónustu og gott samstarf.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is