Opið hús: 20.05.2024, 16:00 - 20.05.2024, 17:00

Sunnusmári 12 - 104 201

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsileg, vönduð og vel skipulögð 69,6 fm 2ja herbergja íbúð í nýjasta hluta Smárans í Kópavogi sem er nútímalegt borgarhverfi þaðan sem stutt er í þjónustu verslana og þjónustu s.s. Smáralind, heilsugæslu, skóla og íþróttaaðstöðu ásamt því sem aðgengi að stofnbrautum og þjónustu almennisvagna er afar auðveld. Íbúðir eru afhentar fullbúnar án megin gólfefna en hægt að kaupa parket aukalega á sérstökum kjörum. Til afhendingar í september 2024.

Sýnum samdægurs - bókaðu einkaskoðun hjá Óskar Sæmann í síma 691 2312

Íbúð 104 er 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í Sunnusmára 10-14.

Íbúðin skilast án megin gólfefna en eldhústæki m.a. innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Stofa og eldhús í opnu svæði. Innréttingar í eldhúsi baðherbergjum og skápar í svefnherbergjum eru frá GKS. Votrými eru flísalögð. Litapalleta, skv. skilalýsingu. Eignin skiptist í anddyri með fataskápum. Eldhús er í opnu rými við stofu og borðstofu þaðan sem útgengt er á sólpall í vestur. Eitt svefnherbergi. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, gólfhita, upphengdri salernisskál og vönduðum hreinlætistækjum. Þvottaaðstaða er inn á baði. Sér geymsla í kjallara er 5,6 fm að stærð.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni: www.201.is

Íbúðum er skilað án parkets. Söluaðili er með verktaka á vinnusvæðinu sem getur séð um að leggja parketi fyrir kaupanda óski hann þess. Niðurlögn getur þá verið í beinu framhaldi af forskoðun og fyrir afhendingu. Reikna má með að parketlögn taki 7-8 daga en skoða þarf það í hverju tilviki fyrir sig. Verktaki vinnur beint fyrir kaupanda og greiðir honum umsamið verð beint fyrir verkið. Upplýsingar um kostnað liggja fyrir hjá fasteignasölu.

Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það verður sett á.

Allar nánari upplýsingar veita:

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691 2312 eða osa@miklaborg.is

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896 8232 eða thorhallur@miklaborg.is

Katla Hanna Steed löggiltur fastiegasali í síma 822 1661 eða katla@miklaborg.is

Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteignasali í síma 695 5520 eða jon@miklaborg.is

Ingimundur Ingimundarson aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Fasteignin Sunnusmári 12 - 104

69.6 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 911,594 Kr/m²
Byggingargerð : Fjölbýlishús
Fasteignamat :
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

Óskar Sæmann
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
62.900.000 Kr.
Hafðu samband