Sunnusmári 13 (503) 201

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir nýjan áfanga í sölu við Sunnusmára í Kópavogi. Sunnusmári 9-13 er lyftuhús með 69 íbúðum í þremur stigagöngum. Íbúðirnar eru vel skipulagðar, á bilinu 64-193 fm. innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja öllum íbúðum. íbúðum er skilað án megin gólfefna. Bílastæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum. Húsið er einangrað og klætt að utan og því viðhaldslétt. Smárinn er nýtt borgarhverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, stutt er í alla helstu þjónustu og verslun.

*** BÓKAÐU EINKASKOÐUN HJÁ SÖLUMÖNNUM ***

íbúð 503 – Þriggja herbergja íbúð á fimmtu hæð með bílastæði í kjallara.

Nánari lýsing eignar

Anddyri með fataskáp. Eldhús með fallegri innréttingu frá Nobilia, lýsing er undir efri skápum. Í eldhúsi verður innbyggður ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð, vifta og blástursofn. Stofa með gluggum til suðvesturs og útgegni út á svalir. Svefnherbergin eru tvö með fataskápum. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, walk-in sturtu, handklæðaofni, innréttingu og upphengdu salerni. Sér þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi. Eigninni fylgir 9,5 fm. geymsla í kjallara.

Kaupendur greiða Skipulagsgjald 0,3% af væntalegu brunabótarmati. Áætluð afhending er Janúar 2024

Verktakinn er ÞG-verk sem hefur yfir 20 ára reynslu og hefur frá 1998 byggt þúsundir íbúða fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins. Meginmarkmið ÞG-verk er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini.

Nánari upplýsingar veita

Óskar Sæmann Axlesson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@miklaborg.is

Fasteignin Sunnusmári 13 (503)

109.4 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 797,248 Kr/m²
Byggingargerð : Fjölbýlishús
Fasteignamat : 34.200.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

Óskar Sæmann
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
86.900.000 Kr.
Hafðu samband